Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir nýr varaformaður Sjálfstæðisflokksins

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, var í dag kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins með 95,6% atkvæða á landsfundi flokksins sem fram fer í Laugardalshöll.

Alls greiddu 772 atkvæði í varaformannskjörinu og hlaut Þórdís Kolbrún 720 af þeim. Aðrir hlutu 33 atkvæði og auðir og ógildir seðlar voru 19.