Nýkjörin forysta Sjálfstæðisflokksins

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sleit 43. landsfundi flokksins rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Áður hafði ný forysta flokksins verið kjörin og stjórnmálaályktun afgreidd.

Bjarni var endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins með 710 atkvæðum eða 96,2% atkvæða.

Þórdís Kolbrún Reykjförð Gylfadóttir hlaut glæsilega kosningu til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins með 720 atkvæðum eða 95,6% gildra atkvæða.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir var auk þess endurkjörin ritari Sjálfstæðisflokksins með 664 atkvæðum eða 93,5% gildra atkvæða.