Kjartan aðstoðar Eyþór
'}}

Kjartan Magnússon borgarfulltrúi hefur tekið að sér að vera pólitískur ráðgjafi Eyþórs Arnalds, borgarstjóraefnis Sjálfstæðisflokksins, fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Verði Eyþór borgarstjóri að loknum kosningum, mun Kjartan verða aðstoðarmaður hans í því embætti.

Kjartan er að góðu kunnur innan Sjálfstæðisflokksins og hefur verið borgarfulltrúi fyrir flokkinn um langt árabil. Fáir þekkja því betur til málefna borgarinnar.