Úrslit í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Grindavík

Loka­töl­ur í próf­kjöri Sjálf­stæðis­flokks­ins í Grindavík liggja nú fyr­ir. Hjálmar Hallgrímsson, sitjandi oddviti í Grindavík, leiðir list­ann, en hann hlaut ör­ugga kosninga í efsta sætið, eða 180 at­kvæði af 208.

 

Listinn er sem hér segir: 

  1. Hjálmar Hallgrímsson
  2. Birgitta Káradóttir
  3. Guðmundur Pálsson
  4. Jóna Rut Jónsdóttir
  5. Irmý Rós Þorsteinsdóttir

Nú tekur kjörnefnd við og gerir tillögu að framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Grindavík fyrir komandi sveitastjórnakosningar.

Greidd atkvæði voru 208 en þar af voru 2 seðlar auðir og ógildir. Talin atkvæði voru því 206.