Auglýst eftir framboðum vegna uppstillingar í Reykjanesbæ

Uppstillingarnefnd fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ hefur verið falið að gera tillögu að framboðslista fyrir kosningarnar í vor. Af því tilefni auglýsir nefndin nú eftir framboðum á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí 2018.

Þeir sem hafa hug á því að taka sæti á framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar 2018 skulu senda uppstillingarnefnd skriflega kynningu þar sem þeir kynna sig og sinn bakgrunn auk þess að tilgreina hvaða sæti á lista sóst er eftir.

Frambjóðendur skulu eiga kosningarétt í kosningum til sveitarstjórnar vorið 2018, vera íslenskir ríkisborgarar og fullra 18 ára þegar kosningar fara fram, eiga lögheimili í sveitarfélaginu og vera meðlimir í Sjálfstæðisfélögunum í Reykjanesbæ.

Framboðum skal skilað netfangið: xd2018rnb@gmail.com í síðasta lagi fimmtudaginn 15. febrúar n.k.