Tilnefningar vegna vals á framboðslista fyrir borgarstjórnarkosningar í Reykjavík

Kjörnefnd Varðar auglýsir eftir tilnefningum á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í maí 2018.

Þeir flokksmenn sem hafa hug á því að taka sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2018 skulu senda kjörnefnd skriflega kynningu þar sem þeir kynna sig og sinn bakgrunn auk þess að tilgreina hvaða sæti á lista sóst er eftir.

Frambjóðendur skulu eiga kosningarétt í kosningum til sveitarstjórnar vorið 2018, vera íslenskir ríkisborgarar og fullra 18 ára þegar kosningar fara fram, eiga lögheimili í sveitarfélaginu og vera meðlimir í sjálfstæðisfélagi í Reykjavík.

Framboðum skal skilað til kjörnefndar, í síðasta lagi þann 1. febrúar næstkomandi, á netfangið: frambod@xd.is