Kjörstaðir í Reykjavík

Leiðtogaprófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fer fram laugardaginn 27. janúar. Kosið er á milli kl. 10 og 18. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru hvattir til að taka þátt og móta þannig framtíðina.

Leiðtogaprófkjörið er opið öllum flokksbundnum sjálfstæðismönnum 15 ára og eldri. Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins sem ganga í flokkinn á kjördegi skulu þó hafa náð 18 ára aldri 26. maí n.k.

Athugið að ekki verður kjörstaður á Hótel Sögu. Þær kjördeildir sem hafa verið þar, eru í Valhöll.

Kjörstaðir eru opnir frá kl. 10:00 – 18:00 og eru þeir eftirfarandi:

  1. Kjörhverfi
    Vestur‐ og Miðbæjarhverfi, Nes‐ og Melahverfi og Miðbæjar‐ og Norðurmýrarhverfi. Öll byggðin vestan Rauðarárstígs að Miklubraut.
    Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1.
  2. Kjörhverfi
    Hlíða‐ og Holtahverfi, Laugarnes‐ og Túnahverfi og Langholtshverfi. Öll byggð er afmarkast af 1. kjörhverfi í vestur og suður. Öll byggð vestan Kringlumýrarbrautar að Suðurlandsbraut og öll byggð norðan Suðurlandsbrautar.
    Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1.
  3. Kjörhverfi
    Háaleitishverfi, Smáíbúða, Bústaða‐ og Fossvogshverfi. Hverfið afmarkast af Kringlumýrarbraut í vestur, Suðurlandsbraut í norður og Reykjanesbraut í austur.
    Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1.
  4. Kjörhverfi
    Árbæjar‐ og Seláshverfi, Ártúns‐ og Norðlingaholt.
    Kjörstaður: Félagsheimili Sjálfstæðisfélagsins, Hraunbær 102b (við hliðina á Skalla).
  5. Kjörhverfi
    Hóla‐ og Fellahverfi, Bakka‐ og Stekkjahverfi, Skóga‐ og Seljahverfi.
    Kjörstaður: Félagsheimili Sjálfstæðisfélaganna Mjódd, Álfabakka 14a.
  6. Kjörhverfi
    Grafarvogur, Bryggjuhverfi, Grafarholt, Úlfarsárdalur og Kjalarnes.
    Kjörstaður: Hverafold 1-3, 2. hæð.