Sameiginlegur morgunverðarfundur stjórnmálaflokkanna.

Í kjölfar #metoo byltingarinnar hafa stjórnmálaflokkar á Íslandi tekið höndum saman og efna til morgunverðarfundar á Grand Hótel Reykjavík mánudaginn 22. janúar næstkomandi. Fundurinn hefst klukkan 8:30 og stendur til 10:30. Þátttaka á fundinum er öllum opin og án endurgjalds, boðið verður upp á léttan morgunverð.

Markmið fundarins er að ræða næstu skref #metoo innan stjórnmálanna og leitast verður við að svara eftirfarandi spurningum.

  • Hvernig geta félagasamtök eins og stjórnmálaflokkar beitt sér fyrir því að minnka líkur á því að hvers kyns áreiti sé liðið?
  • Í hvaða farveg er eðlilegt að mál sem tengjast áreiti fari innan stjórnmálaflokka?

Dagskrá fundarins:

Húsið opnar klukkan 8:00, boðið verður upp á léttan morgunverð.

  • Opnunarávarp
  • Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs
  • Metoo í skugga valdsins
  • Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og talskona Metoo í skugga valdsins
  • Hvar liggja mörkin?
  • Valdís Ösp Ívarsdóttir, fíknifræðingur
  • Óskrifaðar reglur í samskiptum
  • Salvör Nordal, umboðsmaður barna
  • Sjónarhorn karlmanna sem vilja axla ábygð
  • Gestur Pálmason, markþjálfi
  • Metoo – hvað svo
  • Katrín Björg Ríkharðsdóttir, framkvæmdarstjóri Jafnréttisstofu

Pallborð og umræður

Fundastjóri, Kolbrún Halldórsdóttur fv. ráðherra og forseti Bandalags íslenskra listamanna mun stýra pallborðsumræðum í kjölfar erindanna.

Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar lokar fundinum.

Sýnt verður beint frá fundinum hér.