70 ára afmæli Hersis

Sæl verið þið,

Um þessar mundir fagnar Hersir, Félag ungra sjálfstæðismanna í Árnessýslu, 70 ára afmæli félagsins, en félagið var stofnað 2. nóvember 1947.

Af því tilefni býður stjórn félagsins til afmælisveislu sem haldin verður í Karlakórsheimilinu við Eyrarveg 67 fimmtudaginn 2. nóvember, kl. 17-19. Boðið verður upp á léttvín, bjór og léttar veitingar.

Núverandi og fyrrverandi félagsmenn, Sjálfstæðismenn og aðrir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir.

Hér má finna hlekk á viðburðinn:

https://www.facebook.com/events/2016701388605687/

Sjáumst hress á morgun.

Mbk.

Stjórn Hersis