Umræðufundur í Kaupangi

Málfundafélagið Sleipnir boðar til umræðufundar í Kaupangi í kvöld þriðjudaginn 6. júní kl. 20:00.

Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, og Óli Björn Kárason, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, flytja framsögu um þingstörfin og stjórnmálin almennt og svara fyrirspurnum.

Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis.

Heitt á könnunni – allir velkomnir.

Málfundafélagið Sleipnir