Hvað kostar að byggja?
Er fákeppni á húsbyggingamarkaðnum?
Á ég að kaupa núna?
Félag sjálfstæðismanna í Grafarvogi heldur opinn fund um húsnæðismál laugardaginn 13. maí 2017 frá klukkan 11:00 til 12:00 í félagsheimili okkar að Hverafold 1-3, 2. hæð (húsið opnar kl. 10:30).
Gestur fundarins verður Einar H. Jónsson byggingatæknifræðingur og mun hann fjalla um húsnæðiskostnað í borginni, raunverulegan byggingarkostnað, lóðaframboð, gæði bygginga o.fl ásamt því að svara fyrirspurnum úr sal.
Komið í morgunkaffi laugardaginn 13. maí og eigið gott samtal um málefni sem snertir okkur öll. Allir velkomnir.
Fylgist með á heimasíðu okkar www.grafarvogurinn.is