Umræðufundur í Kaupangi

Málfundafélagið Sleipnir boðar til umræðufundar í Kaupangi í kjördæmaviku þingmanna laugardaginn 11. febrúar kl. 11:00. Rætt um stöðuna í pólitíkinni og málefni kjördæmisins.

Kristján Þór Júlíusson, menntamálaráðherra, Njáll Trausti Friðbertsson og Valgerður Gunnarsdóttir, alþingismenn Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, flytja framsögu og svara fyrirspurnum.

Allir velkomnir – létt morgunhressing í boði.

Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis