Kjördæmisþing fyrir Norðaustur í Mývatnssveit 3 og 4 september

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi kemur saman til fundar í Mývatnssveit helgina 3. og 4. september nk. Þar verður kosið um sex efstu sætin á framboðslista fyrir alþingiskosningar í svonefndri röðun, þar sem aðal- og varafulltrúar í kjördæmisráði hafa atkvæðisrétt. Í fundarlok á sunnudegi mun kjörnefnd leggja fram tillögu að skipan framboðslistans í heild.

Skráning á þingið

Dagskrá þingsins er eftirfarandi:

Laugardagur 3. september

    10:30         Skráning á þingið
    11:00         Fundur hefst – formaður kjördæmisráðs flytur stutta tölu

Kosning í efstu sæti framboðslista í alþingiskosningum

11:05         Formaður kjörnefndar fer yfir ferlið í kosningu um efstu sex sætin
11:10         Kosning hefst – kynning frambjóðenda og kosið í hvert sæti fyrir sig

12:45         Hádegishlé
13:15         Kosning og kynning frambjóðenda heldur áfram

Undirbúningur fyrir þingkosningar

16:00         Umræða um kosningabaráttuna framundan
17:10         Ávarp – oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi

17:20         Fundarhlé

17:30         Ferð í jarðböðin
19:30         Kvöldverður á Sel-Hótel

Sunnudagur 4. september

   11:00         Lögð fram tillaga að framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi
                     Formaður kjörnefndar leggur fram tillögu að framboðslista við alþingiskosningar 2016

   11:20         Umræða um tillögu að framboðslista og kosning

12:00         Fundarlok (formaður kjördæmisráðs slítur fundi)