D-listi Sjálfstæðismanna í Rangárþingi ytra

Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri og PhD í erfðafræði, leiðir D-lista Sjálfstæðismanna í Rangárþingi ytra sem samþykktur var samhljóða á fjölmennum fundi í kvöld á Hellu.

Björk Grétarsdóttir, fyrirtækjaráðgjafi og MA í alþjóðasamskiptum, er í öðru sætinu. Haraldur Eiríksson, formaður byggðarráðs og fjármálastjóri er í þriðja sætinu og Hjalti Tómasson, starfsmaður þjónustumiðstöðvar í fjórða sætinu.

Drífa Hjartardóttir, fyrrverandi alþingismaður og sveitarstjóri, skipar 14. sæti listans.

Meðalaldur á listanum er rúmlega 42 ár og hann skipa 8 konur og 6 karlar.

Listinn í heild:

  1. Ágúst Sigurðsson (1964), sveitarstjóri og PhD í erfðafræði, Kirkjubæ, Rangárvöllum
  2. Björk Grétarsdóttir (1985), fyrirtækjaráðgjafi og MA í alþjóðasamskiptum, Rjóðri, Holtum
  3. Haraldur Eiríksson (1962), fjármálastjóri og formaður byggðarráðs, Grásteinsholti, Holtum
  4. Hjalti Tómasson (1973), starfsmaður þjónustumiðstöðvar, Hellu, Rangárvöllum
  5. Helga Fjóla Guðnadóttir (1957), starfsmaður Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Lundar, Skarði, Landsveit
  6. Hugrún Pétursdóttir (1987), háskólanemi, Hellu, Rangárvöllum
  7. Hrafnhildur Valgarðsdóttir (1971), grunnskólakennari, Hellu, Rangárvöllum
  8. Sævar Jónsson (1952), húsasmíðameistari og búfræðingur, Snjallsteinshöfða, Landsveit
  9. Ína Karen Markúsdóttir (1991), háskólanemi, Hellu, Rangárvöllum
  10. Anna Wojdalowicz (1980), starfsmaður Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Lundar, Hellu, Rangárvöllum
  11. Sindri Snær Bjarnason (1991), sundlaugarvörður, Hellu, Rangárvöllum
  12. Dagur Ágústsson (1999), menntaskólanemi, sauðfjárbóndi og formaður félags ungra Sjálfstæðismanna, Kirkjubæ, Rangárvöllum
  13. Sólrún Helga Guðmundsdóttir (1976), varaoddviti og starfsmaður á markaðsdeild Hótel Rangár, Hellu, Rangárvöllum
  14. Drífa Hjartardóttir (1950), bóndi, fyrrverandi alþingismaður og fyrrverandi sveitarstjóri, Keldum, Rangárvöllum