Reykjavíkurþing

Vörður – fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík stendur fyrir Reykjavíkurþingi í Valhöll dagana 19. og 20. maí.

Um er að ræða stefnumótandi málefnaþing þar sem mótuð verður framtíðarsýn í sex mismunandi málaflokkum sem endurspegla svið Reykjavíkurborgar, þ.e. Íþrótta- og tómstundanefnd, menningar- og ferðamálanefnd, skóla- og frístundanefnd, umhverfis- og skipulagsnefnd, velferðarnefnd og fjármálanefnd. Lista yfir stjórnir málefnanefndanna er að finna hér.

Við hvetjum alla sjálfstæðismenn í Reykjavík til að taka virkan þátt í opnu starfi nefndanna fram að Reykjavíkurþinginu.

Dagskrá Reykjavíkurþings 2017

Eyðublöð fyrir breytingatillögur.

Fundarsköp Reykjavíkurþings-2017

Fulltrúar á Reykjavíkurþingið skiptast á milli flokksfélaganna í Reykjavík í samræmi við fjölda félagsmanna þeirra. Kjörgengir eru allir flokksbundnir sjálfstæðismenn með búsetu í Reykjavík. Til að sækja um sæti á Reykjavíkurþingið þurfa flokksmenn að setja sig í samband formann síns flokksfélags í Reykjavík. Lista yfir flokksfélögin í Reykjavík og formenn þeirra er að finna hér.

Þinggjald er 3.500 krónur fyrir þá fulltrúa sem greiða það í síðasta lagi þriðjudaginn 16. maí. Eftir þann tíma er gjaldið 5.500 krónur.

Greiða þinggjald án afsláttar. 5.500 ISK