Vinstri grænir flýja skip

Jórunn Pála Jónasdóttir, 9. sæti í Reykjavík:

Í grein á Vísi þann 11. maí leggja frambjóðendur Vinstri grænna í borginni til að friðlýsa Elliðaárdal. Það er fagnaðarefni að frambjóðendurnir séu á einu máli með Sjálfstæðisflokknum að þangað beri að stefna en skrifin gefa engu að síður tilefni til þess að skoða forsögu málsins nánar og sérstaklega aðkomu Vinstri Grænna sem telja nú að „starfsemi af þessu tagi muni hafa óafturkræf áhrif á gæði Elliðaárdalsins og rýra gildi hans sem útivistarsvæðis.“

Núverandi meirihluti í borgarstjórn, þar á meðal borgarfulltrúi og oddviti Vinstri grænna, Líf Magneudóttir, auk borgarstjóra og oddvita Samfylkingarinnar, Dags. B. Eggertssonar, samþykkti árið 2016 vilyrði á lóð í Elliðaárdal fyrir umfangsmiklum rekstri í tengslum við verkefnið Biodome Aldin. Vilyrðið nær nú alls til 13.000 m2 lóðar þar sem til að byrja með er gert ráð fyrir 3800 m2 grunnflöt bygginga.

Þegar málið var til umfjöllunar lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram svohljóðandi bókun:

„Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að vilyrði fyrir lóð fyrir Biodome við Stekkjarbakka þurfi að meðhöndlast af mikilli varkárni gagnvart umhverfinu því margt getur komið upp á í því ferli sem framundan er. Ótal mörg skilyrði þarf að uppfylla til að þessi viðkvæmi staður geti komið til greina. Vinna þarf deiliskipulag fyrir staðinn þar sem ströng skilyrði vegna mögulegrar ljósmengunar verða sett og taka þarf tillit til samkeppnissjónarmiða við lóðaúthlutun verði af henni.“

Verkefnið gerir ráð fyrir 800 til 1000 gestum á dag og frá 50 til 85 bílastæðum. Gert er ráð fyrir að aðgangseyrir inn í hvelfinguna verði á við tvo bíómiða.

Íbúar í grennd við svæðið hafa ekki fengið heildstæða kynningu á verkefninu eða áhrif þess á umhverfið. Hins vegar liggja þær upplýsingar fyrir og hafa Hollvinasamtök Elliðaárdals til að mynda fengið ítarlega kynningu á verkefninu, með þeim skilyrðum að samtökin deili upplýsingunum ekki áfram til íbúa. Velta má fyrir sér hvers vegna íbúar fái ekki aðgang að þeim upplýsingum til jafns við samtökin. Áætlað er að verkefnið fari ekki í opið kynningarferli fyrr en síðar í þessum mánuði eða í júní nk.

Útgangspunktur verkefnisins BioDome Aldin er að bjóða upp á mannleg upplifun í trópísku vistkerfi sem er framandi því fjölbreytta og viðkvæma vistkerfi sem er fyrir í dalnum, í eins konar gerviheimi. Núverandi staðarval gerir það að verkum að hin mannlega upplifun verður hins vegar ávallt á kostnað þeirrar mikilfenglegu náttúru sem er þar fyrir og vistkerfi Elliðaárdals látið njóta vafans.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt fram tillögu í borgarráði um friðlýsingu Elliðaárdals. Skorað er á Vinstri græna að leggjast á árarnar með Sjálfstæðisflokknum og samþykkja tillöguna. Það er eina vörnin gegn freistni borgarfulltrúa um frekari úthlutun úr landi Elliðaárdals.

Birtist fyrst á Vísi 11. maí 2018