11 þátttakendur í prófkjöri í Rangárþingi ytra

Prófkjör í Rangárþingi ytra

Alls bárust 11 framboð í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Rangárþingi ytra, sem fram fer 14. apríl nk. fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Framboðsfrestur rann út í dag.

Eftirfarandi taka þátt í prófkjörinu:

  • Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri
  • Björk Grétarsdóttir, fyrirtækjaráðgjafi
  • Haraldur Eiríksson, fjármálastjóri
  • Heimir Hafsteinsson, umsjónarmaður fasteigna
  • Helga Fjóla Guðnadóttir, starfsmaður Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Lundar
  • Hjalti Tómasson, starfsmaður þjónustumiðstöðvar Rangárþings ytra
  • Hrafnhildur Valgarðsdóttir, grunnskólakennari
  • Hugrún Pétursdóttir, nemi
  • Ína Karen Markúsdóttir, deildarstjóri
  • Sindri Snær Bjarnason, sundlaugarvörður
  • Sævar Jónsson, húsasmíðameistari