Fundur með samgönguráðherra

Sjálfstæðisfélag Seltirninga boðar til félagsfundar laugardaginn 16. september 2017 kl. 10:00 í sal félagsins að Austurströnd 3, 3. hæð.

Gestur fundarins: Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Dagskrá:

  1. Samgöngumál
  2. Önnur mál

Jón Gunnarsson verður með framsögu um samgöngumál sem varða m.a. beina hagsmuni Seltirninga t.d. með tilliti til forgangsaksturs, hugmyndir um borgarlínu, veggjöld o.fl.

Boðið verður upp á kaffi, rúnstykki og vínarbrauð.

Allir velkomnir,

Stjórnin.