Vala Pálsdóttir kjörin formaður LS

Ný stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna var kjörin á aukaaðalfundi sambandsins sem haldinn var þriðjudaginn 5. apríl. Sjö nýjar konur taka sæti í aðalstjórn og 8 í varastjórn. Þá var Vala Pálsdóttir, kjörin formaður Landssambandsins.

Vala hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu.  Hún starfaði m.a. um árabil á RÚV og sem forstöðumaður fjárfestatengsla hjá Íslandsbanka. Vala er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og lauk meistaragráðu í alþjóðamarkaðssamskiptum frá Emerson College í Boston í ágúst 2016. Vala hefur starfað fyrir Sjálfstæðisflokkinn um árabil, hún var kosningastjóri Ólafar Nordal í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík s.l. haust og starfaði með Ólöfu fram yfir alþingiskosningarnar.

Stjórnin hefur þegar tekið til starfa og mun sitja fram að næsta aðalfundi að ári.

Auk Völu vöru kjörnar í aðalstjórn

Áslaug J. Jensdóttir, Ísafirði

Bergþóra Þórhallsdóttir, Akureyri

Dýrunn Pála Skaftadóttir, Neskaupsstað

Gauja Hálfdánardóttir, Kópavogi

Herdís Anna Þorvaldsdóttir, Reykjavík

Ingibjörg Guðmundsdóttir, Reykjavík

Íris Róbertsdóttir, Vestmannaeyjum

Jóhanna S. Pálsdóttir, Reykjavík

Lilja Birgisdóttir, Reykjavík

Nanna Kristín Tryggvadóttir, Kópavogi

Sigurrós Þorgrímsdóttir, Kópavogi

Sirrý Hallgrímsdóttir, Reykjavík

Svava Þórhildur Hjaltalín, Akureyri

 

Varastjórn:

Arndís Kristjánsdóttir, Reykjavík

Ásta Roth, Reykjavík

Ásthildur Sturludóttir, Vesturbyggð

Björg Fenger, Garðabæ

Elsa Dóra Grétarsdóttir, Reykjavík

Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, Hafnarfirði

Halldóra Björk Jónsdóttir, Garðabæ

Helga Guðný Sigurðardóttir, Kópavogi

Hulda Guðmunda Óskarsdóttir, Reykjavík

Jóhanna Hallgrímsdóttir, Reyðarfirði

Laufey Sif Lárusdóttir, Hveragerði

Margrét Björnsdóttir, Kópavogi

Margrét Kristín Sigurðardóttir, Garðabæ

Sjöfn Þórðardóttir, Seltjarnarnesi