Hádegisfundur SES – Uppbygging Landspítala við Hringbraut

Uppbygging Landspítala við Hringbraut

Samtök eldri Sjálfstæðismanna boða til hádegisfundar í Valhöll, miðvikudaginn 5. október, kl. 12 á hádegi.

Gestur fundarins: Þorkell Sigurlaugsson framkvæmdastjóri fer yfir uppbyggingaráform Landspítala við Hringbraut og mikilvægi þeirra.

Húsið verður opnað kl. 11:30.

Boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi, 850 krónur.

Allir velkomnir.

Með kveðju,

Stjórnin.