Laugardagsfundur í Kópavogi: Prófkjör að baki, kosningarbarátta framundan

Kæru félagar í Sjálfstæðisfélaginu í Kópavogi

Stjórn boðar til fundar næstkomandi laugardag, þann 17. september, kl. 10.00 í Hlíðarsmára 19.

Fundarefnið er: „Prófkjör að baki, kosningarbarátta framundan“.

Að þessu sinni verður ekki um erindi með frummælanda að ræða. Fundarmönnum er í staðinn boðið að stíga í pontu og ræða ofangreint umræðuefni.

Allir hjartanlega velkomnir, gott kaffi í boði og kruðeríið á sínum stað að vanda.

Kær kveðja
Stjórn sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi