Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í könnun MMR

Í nýjustu könnun MMR sem gerð var á dögunum 22-29 ágúst mældist sjálfstæðisflokkurinn með 24,6% kjörfylgi og hækkaði sig frá 24% frá seinustu könnun sem lauk 4 júlí.

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,2% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,5%), myndu skila auðu (6,0%), myndu ekki kjósa (0,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,5%).