Lýsa yfir miklum áhyggjum af rekstri borgarinnar

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýstu á fundi borgarráðs í dag yfir þeim miklu áhyggjum sem þeir hafa af stöðu og rekstri Reykjavíkurborgar, en eins og fram hefur komið á helstu fréttamiðlum í dag sýnir rekstrarniðurstaða Reykjavíkurborgar á síðasta ári fimm milljarða halla. Fjárhagsáætlun borgarinnar gerði ráð fyrir 7,3 millj­arða króna af­gangi og er því ljóst að áætlunin skeikaði um 12,3 milljarða króna.

„Af hverju eru sumar fréttir um 5 milljarða tap og aðrar um 13,6 milljarða tap? Jú vegna þess að meirihluti Pírata, Bjartrar framtíðar, Samfylkingar og Vinstri grænna sendi frá sér fréttatilkynningu þar sem talað er um samstæðu (borgarsjóð og fyrirtækja) en við borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fjöllum um stöðu borgarsjóðs (A hluta) sem er allur rekstur borgarinnar sem rekinn er fyrir skattfé. Þar er 13,6 milljarða tap og skuldaaukning um 16,2 milljarða kr. á einu ári og bætist við taprekstur og skuldaaukningu alveg frá 2010 þegar Dagur og Jón Gnarr tóku við stjórn borgarinnar,“ segir Halldór Halldórsson, oddviti borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag.

„Ársreikningur Reykjavíkurborgar 2015, sem birtur var í dag, staðfestir að rekstur Reykjavíkurborgar er í algerum ólestri undir stjórn meirihluta Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Vinstri grænn,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins um rekstrarniðurstöðu borgarinnar á Facebook í dag.

Bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í heild sinni:

„Sem fyrr lýsa borg­ar­ráðsfull­trú­ar Sjálf­stæðis­flokks­ins yfir mikl­um áhyggj­um af rekstri Reykja­vík­ur­borg­ar sem hef­ur verið í al­gjör­um ólestri allt þetta kjör­tíma­bil sem og kjör­tíma­bilið 2010-2014 í hönd­um Sam­fylk­ing­ar og Besta flokks­ins.  Rekstr­arniðurstaðan er tap upp á 13,6 millj­arða kr. A hluta er slá­andi og þótt stór hluti þess sé ein­skipt­is gjald­færsla vegna hækk­un­ar líf­eyr­is­skuld­bind­inga er hinn al­menni rekst­ur ekki í lagi séu þess­ar hækk­an­ir dregn­ar frá en þá væri ta­prekst­ur­inn 1,3 millj­arðar kr.

Sést þetta enn bet­ur með því að skoða veltu­fé frá rekstri sem seg­ir hversu miklu fjár­magni rekst­ur­inn skil­ar til fjár­fest­inga og greiðslu skulda. Veltu­fé frá rekstri er 5,7% af tekj­um árs­ins en þyrfti að vera a.m.k. 9% þannig að rekst­ur­inn er langt frá því að skila nauðsyn­legu fram­lagi. Niðurstaðan er enn eitt ta­prekstr­ar­árið hjá nú­ver­andi meiri­hluta og for­vera hans. Skulda­aukn­ing A-hluta er 16,2 millj­arðar kr. milli ár­anna 2014 og 2015.“